15.3.2007 | 11:24
Seljum verndun hvalanna
Þá er komið tilboð í tvær Langreyður, rúmar ellefu milljónir. Ekki há upphæð.
Ég vil taka þetta mál áfram. Hvalurinn er orðinn eitt höfuðtákna umhverfisverndar og verður því alltaf erfitt fyrir okkur að standa í veiðum hans. Við megum ekki við slíkri umfjöllun sem af veiðun hvala hlýst, þar er einfaldlega verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.
Rétt eins og almennur fiskkvóti er eigna ákveðinna aðila í dag, þá geri ég að tillögu minni að hvalveiðikvóti verði boðinn út til t.d. 5 ára í senn. Ekki til veiða, heldur til verndar. Þannig fengi hæstbjóðandi hverju sinni, rétt til þess að nota ákveði LOGO á vöru sína sem gefur til kynna að með kaupum á vöru þessari er verið að vernda hvali frá veiði.
Ég sé til dæmis Jón Ólafsson setja slíkt merki á vatnið sitt sem nú er að seljast grimmt síðar og víðar um heiminn, nú ef uppboðið tækist vel og fengi góða umfjöllun, þá má alveg eins ímynda sér Coca Cola eða Pepsi nýta sér slíkt.
Ef stórfyrirtæki færu á annað borð að slást um slíkt logo, þá gætu verið umtalsverðar fjárhæðir í spilinu...
![]() |
WSPA bjóða ríkisstjórninni 95.000 pund fyrir tvo hvali og samning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nei þarna er eg ekki sammála,við eigum að nota auðlindir hafsins/þetta er prinipmál okkar ,bara hvað verður friðað næst ef þeim tekst að friða HVALIN/ Halli gamli XD
Haraldur Haraldsson, 15.3.2007 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.