6.4.2007 | 14:27
Sama hvað á dynur í veröldinni..
Það virðist sama hvað á dynir í veröldinni, stríð, náttúruhamfarir eða hverjar aðrar hörmungar til lengri eða skemmri tíma, Ísland siglir í gegnum þetta allt saman hægt og örugglega, og alltaf upp á við. Hitastigið fer hækkandi, fólki fer fjölgandi, trén fara stækkandi, bönkunum fjölgandi, milljóna- og milljarðamæringum fjölgandi, ýsugengdin í sjónum vaxandi, og Guð má vita hvað!
Hvað hef ég til unnið að hafa fæðst í þessu sæluríki?
Góð og slæm gróðurhúsaáhrif í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Allt sem fer upp þarf einhvern tímann að koma niður. Það er um að gera að njóta góðærisins en á sama tíma hugsa um framtíðina. Því ef að vísindamenn hafa rétt fyrir sér þá er mikil hætta á að Grænlandsjökull bráðni og þ.a.l. stöðvi golfstrauminn sem svo leiðir til annarar ísaldar, þ.e. ef við vöknum ekki upp af dvala og reynum að gera eitthvað í málinu.
Halldóra Scales (IP-tala skráð) 6.4.2007 kl. 15:02
Allt sem fer upp þarf einhvern tímann að koma niður. Það er um að gera að njóta góðærisins en á sama tíma hugsa um framtíðina. Því ef að vísindamenn hafa rétt fyrir sér þá er mikil hætta á að Grænlandsjökull bráðni og þ.a.l. stöðvi golfstrauminn sem svo leiðir til annarar ísaldar, þ.e. ef við vöknum ekki upp af dvala og reynum að gera eitthvað í málinu.
Halldóra Scales (IP-tala skráð) 6.4.2007 kl. 15:57
Kæra Halldóra, ekki að örvænta. Allt getur gerst á einn eða annan veg og sem betur fer liggja fyrir vísindaleg gögn sem draga í efa að maðurinn valdi hér öllu. Hið náttúrulega umhverfi hefur hingað til séð alfarið um að breyta veðurfari, valdið ísöldum og hlýindaskeiðum og engar líkur á að sú vinna sé aflögð.
Gleðilega páska öll,
Ólafur Als, 6.4.2007 kl. 18:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.